innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég veit að ég setti hann í ákveðinn vanda hér. Það sem ég var að reyna að fá fram hjá hv. þingmanni var að hann ætlaði að skipta út þessari töflu sem er í samgönguáætlun og skrifa í staðinn fyrir hana bara eina framkvæmd, sem væri framlag til Fljótaganga. Það var það sem ég var að vonast til að hv. þingmaður myndi tefla fram. Því að eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur komið að oftar en einu sinni í dag þá sjást hvergi spor um hvar þessir fjármunir eru sem mun þurfa að leggja til Fljótaganga. Menn eru í rauninni að reyna að elta þá fjármuni. Þess vegna er þessu teflt fram.
Mig langar líka að heyra afstöðu hv. þingmanns til þess hvernig við förum með það þegar til verður keðja af framkvæmdum, t.d. eins og á leiðinni frá Borgarnesi til Reykjavíkur vegna mögulegra framkvæmda innviðafélagsins. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að hægt verði að tempra gjaldheimtu á þessari leið, alla vega þannig að það verði einhver sanngirni milli þeirra sem eru að sækja t.d. þjónustu til höfuðborgarsvæðisins, sem koma af Vesturlandi, og þeirra sem t.d. koma af Suðurlandi?