157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:09]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir virkilega góða spurningu af því að ég held að þetta sé einmitt það sem við þurfum að hugsa, eins og ég sé þetta fyrir mér. Þetta er náttúrlega ekki í nefndarálitinu, hann er bara að óska eftir hugleiðingum mínum. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að það sé einn aðili sem haldi utan um gjaldtökuna þannig að við getum temprað þetta á milli svæða. Það þarf auðvitað að vera þannig að hver og ein framkvæmd standi undir sér. Við getum ekki farið að láta Hvalfjarðargöng II standa undir einhverri brú á Suðurlandi, það má auðvitað ekki. Þannig að við þurfum að horfa á þetta í einhverju samhengi. Það hefur verið mjög sterk umræða um það, sérstaklega meðal þeirra sem búa á Vesturlandi, af því að þeir áttu megnið af þeim veggjöldum sem innheimtust í Hvalfjarðargöngunum. Þannig að ég held að við þurfum að skoða það sérstaklega hvernig við snúum okkur í því þegar fólk, sama hvort það býr á Vesturlandi eða ekki — að þegar við erum að tala um stórnotendur þá sé í því tilfelli hægt að notast við eins konar afsláttarkerfi. Mér finnst það koma mjög vel til greina.