innviðafélag.
Virðulegur forseti. Mig langaði til að spyrja hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur aðeins út í þetta svokallaða FFF. Hún minntist á að flýta, fjármagna og framkvæma, ef ég heyrði rétt. En gott og vel. Ég er hlynnt innviðafélagi út af fyrir sig. Ég er hlynnt því, aðallega vegna þess að ég tel að það gæti komið þekking, að framkvæmdum gæti verið flýtt, fjármagn komi frá einkaaðilum og jafnvel erlend fjárfesting. Þannig að það er margt gott við innviðafélag.Hins vegar hef ég smá áhyggjur og mér fannst ég heyra á málflutningi hv. þingmanns nánast eins og að ef þetta væri í innviðafélagi þá væri þetta frítt. Ég veit að hv. þingmaður orðaði það ekki þannig. Engu að síður er umræðan svolítið eins og þetta sé allt bara svo jákvætt fyrir okkur af því að þá sé hægt að gera allt hraðar. Þess vegna er fyrsta spurningin: Er ekki hv. þingmaður sammála mér í því að á endanum endi gjaldtakan auðvitað alltaf á okkur sem erum að nota vegina? Þetta er auðvitað bara viðbótarkostnaður. Og þegar hún breytir svona kerfi — eins og hv. þingmaður talaði um að hér hefði ekki verið samstaða um en að nú væri samstaða. En alls staðar í heiminum, eða sennilega á flestum stöðum þar sem er svona gjaldtaka, þá er horft á heildarmyndina. Þetta getur ekki verið hrein viðbót því að þetta er tilfærsla fjármuna. Mér sýnist að þessi ríkisstjórn ætli að hafa þetta sem hreina viðbót. Því spyr ég líka hv. þingmann: Er ekki eðlilegt að skoða þetta; reikna dæmið og sjá hvar megi minnka á móti? Því að það getur ekki bara alltaf verið hægt að bæta við.