innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Það gladdi mig að heyra að það er samstaða um að koma á svona félagi, eins og ég greindi í hennar orðum. Það er mikilvægt, af því að ég held að hún sé talskona framkvæmda líkt og ég, og að það þurfi eitthvað stærra til til þess að koma því á koppinn.
Kannski að ég byrji á að svara spurningunni. Það er ekkert til sem heitir frír hádegisverður þannig að það er auðvitað verið að gera ráð fyrir því að það verði veggjöld í innviðafélaginu, svo að það sé alveg á hreinu. Það er þess vegna sem við getum flýtt þessu. En mig langar líka í því skyni að nefna að það er hægt að sleppa því að fara í innviðafélag en þá verðum við að malla svo hægt. Þá komumst við lítið áfram, eins og dæmin sýna síðustu árin. Við getum haldið áfram þar. Þá bara gerist allt svo hægt. Það kemur auðvitað bara niður á vegakerfinu, það kemur niður á samkeppnishæfni, það hefur neikvæð áhrif á verðmætasköpun. Það er í rauninni hin hliðin á peningnum. Við höfum hér einstakt tækifæri til að koma á fót innviðafélagi til að hraða, flýta og fjármagna — nú er ég bara orðin eins og PR-sérfræðingur, með F-in þrjú, eins og við lærðum í markaðsfræðinni í gamla daga. En það er auðvitað gert ráð fyrir veggjöldum í þessu og það sem skiptir líka máli er að með innviðafélaginu, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, erum við líka að sækja nýtt fjármagn inn, fjármagn sem ríkissjóður býr ekki yfir, eins og hún þekkir auðvitað mætavel sjálf.