innviðafélag.
Virðulegur forseti. Þetta er nefnilega heila málið. Það er þessi jafnvægislist sem við stjórnmálamennirnir hér á Alþingi og þeir sem eru að semja þessi frumvörp verðum auðvitað að hafa í huga: Hvenær er gjaldheimtan orðin of mikil? Við gætum auðvitað sagt, af því að við erum báðar sammála innviðafélagi: Af hverju að stoppa við þessar framkvæmdir sem eru í samgönguáætlun? Af hverju ekki bara að tvöfalda framkvæmdirnar og láta þetta gerast enn hraðar? Það er vegna þess að þetta er einhver jafnvægislist. Ég óttast að núna sé ekki verið að hugsa um heildarmyndina þegar kemur að því að hvað heimili landsins þurfa að borga. Ég er alveg sammála því að fara í sem flestar framkvæmdir í samvinnu við einkaaðila. Það er alveg góðra gjalda vert. En samhliða því að breyta kerfinu hlýtur maður að þurfa að skoða kerfið eins og það er. Þú getur ekki sett það, bara búmm, ofan á. Þú hlýtur að þurfa að endurskoða hversu mikla innheimtu, hversu mikla skatta þú ætlar að taka af fólkinu í landinu. Og það að venjuleg fjölskylda hér á höfuðborgarsvæðinu sé að lenda í 40.000–50.000 kr. í auknum sköttum mánaðarlega er auðvitað gríðarlega erfitt fyrir heimili landsins. Þannig að vantar ekki svolítið þessa greiningu: Hvað erum við að gera ráð fyrir að þetta hækki mikið? Og ég endurtek spurninguna: Finnst hv. þingmanni ekki að við þurfum að endurskoða öll þau gríðarlega miklu gjöld sem nú þegar eru sett á bifreiðaeigendur landsins?