innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég nefndi það í ræðu minni hér áðan að mér fyndist hafa orðið mikil breyting á umræðunni meðal landsmanna, til að mynda um veggjöld. Hún hefur breyst mjög mikið og jafnvel þroskast á síðustu árum. Nú er ég íbúi á Vestfjörðum og fyrir tíu árum voru hér heilu og hálfu ályktanirnar frá okkar þingum þar sem við höfnuðum slíkum veggjöldum — það er kannski eitthvað lengra síðan. Þá voru jafnvel hugmyndir um hvort það ætti að setja veggjöld á Bolungarvíkurgöng og fleira og öllu slíku hafnað. En svo er bara raunin sú að íbúar þessa lands hafa náttúrlega séð að það gerist allt svo hægt þannig að fólk er tilbúið að leggja veggjöldin á sig og búa við þau til þess að framkvæmdir fari fyrr af stað. Þannig að ég held að fólk sjái ávinninginn af þessu.
En ég vil líka taka undir orð hv. þingmanns. Ég held að það þurfi að skoða þetta yfir heildina. Maður hefur auðvitað áhyggjur af ákveðnum hópum í þessu samfélagi sem eiga erfiðara með veggjöldin. Það eru auðvitað þessi tekjulægstu sem þetta lendir harðast á. Ég nefndi það í andsvari áðan við hv. þm. Ólaf Adolfsson að ég held að kosturinn við að þetta sé allt á einni hendi sé að þá sé kannski betur hægt að stýra þessu svo við lendum ekki í bílastæðafrumskóginum eins og við erum núna bara með bílastæðagjöldin. Með því að hafa þetta í einu félagi þá náum við kannski betri yfirsýn. Í þeim frumvörpum sem við höfum til að mynda fengið, af því að við hv. þingmaður sitjum báðar í efnahags- og viðskiptanefnd, höfum við oft verið að fá greiningar á mismunandi samfélagshópum. Ég held að það sé mjög gagnlegt að gera slíkt við gerð frumvarpa af því að oftar en ekki þá kemur þetta verst niður á þeim sem minnst hafa á milli handanna.