157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:19]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um innviðafélag sem hangir auðvitað við tvö önnur þingmál sem hér eru til umfjöllunar þessa dagana; annars vegar þingsályktunartillögu um samgönguáætlun sem var til umfjöllunar í gær, og eftir atvikum síðar í dag, og svo hins vegar fjármálaáætlunina sjálfa. Ég segi að þetta hangi saman vegna þess að það er ekki nóg að vera með stórar og fallegar hugmyndir; á endanum snýst þetta að miklu leyti um krónur og aura, það þarf að fjármagna öll herlegheitin. Hér er sem sagt lagt upp með stofnun sérstaks innviðafélags sem á að geta flýtt fyrir samgöngubótum, eins og segir í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar er tilgangurinn einmitt þessi, „að stofna innviðafélag í eigu ríkisins sem ætlað er að vera fjármögnunar- og eignarhaldsfélag fyrir tilteknar samgönguframkvæmdir.“ Svo segir:

„Sjálfstæð tekjuöflun félagsins gerir því kleift að taka lán á markaði til langs tíma og hraða með því uppbyggingu verkefnanna umfram hefðbundin ríkisverkefni sem fjármögnuð eru á fjárlögum fyrir hvert ár og í fjármálaáætlun.“

Ég mun víkja betur að efni frumvarpsins sjálfs hér síðar í ræðu minni en í upphafi tel ég rétt að geta þess að við í Sjálfstæðisflokknum og ég sjálfur erum auðvitað fylgjandi því og viljum að við bætum í viðhald vega og nauðsynlegar samgöngubætur. Það er full þörf á því og þetta segi ég auðvitað bæði sem þingmaður Reykvíkinga en einnig auðvitað landsins alls. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að bæta samgöngur. Þjóðfélag eins og okkar, þótt landið sé stórt og við séum fá þá erum við samt ríkt samfélag og við eigum auðvitað að geta gert þetta af myndarbrag. Þetta skiptir landsbyggðina gríðarlegu máli. Það getur einfaldlega verið forsenda byggðar eða atvinnuuppbyggingar að þessi mál séu í lagi. Þetta getur líka verið spursmál upp á líf og dauða, þannig að það sé sagt. Auðvitað eru öryggismál stór hluti af þessu öllu. Þetta er bakgrunnurinn sjálfur.

Hér er sem sagt lagt upp með að búa til nýtt félag sem á að geta flýtt fyrir og þá aðallega komið að því að búa til möguleika á lántöku með því að vera með tekjuberandi eignir inni í félaginu sjálfu. Allt miðar þetta á endanum auðvitað að frekari veggjöldum. Í því sambandi er mikilvægt að halda því til haga að samkvæmt samgönguáætlun ætlar ríkisstjórnin á næstu fimm árum að verja rúmlega 70 milljörðum á ári en tekjurnar sem ríkissjóður hefur af umferðinni, hvort sem það eru kílómetragjöld, vörugjöld eða önnur slík gjöld, skattar og virðisaukaskattur, eru í kringum 90–100 milljarðar á næsta ári. Það er nálægt þessu markmiði sem ríkisstjórnin hefur sett sér um að tekjur af umferð séu í kringum 1,7% af vergri landsframleiðslu. Ég nefni þetta af ástæðu vegna þess að þá er öllum ljóst að umferðin greiðir með sér. Hugmyndir um að fara í, hvað hefur þetta verið kallað, aðhald á tekjuöflunarhlið eða fara í nýjar gjaldtökur, hvort sem er í formi skatta eða veggjalda, bætast auðvitað ofan á þessa stöðu. Það getur auðvitað verið nokkuð, hvað skal segja, villandi kannski að veifa frekari samgönguúrbótum sem gulrót við nýja skattlagningu, eins og þessi ríkisstjórn hefur gert í umræðum t.d. um veiðigjöld hér síðasta sumar, með kílómetragjaldi og annað. Allt hangir þetta á spýtunni; að þá verði fyrst kleift að ráðast í verulega áframhaldandi uppbyggingu. Þetta skiptir auðvitað máli.

Ég vil líka af þessu tilefni geta þess að það er snúið fyrir okkur, í það minnsta í stjórnarandstöðunni, að ræða um málið vegna þess að ríkisstjórnin hefur borið á borð þrjár útgáfur af efni þess. Fyrst var samgönguáætlun kynnt í desember sl. með pompi og prakt, útgáfu skýrslu og undir heitinu Ræsum vélarnar. Þar var haft eftir hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta, á vef Stjórnarráðsins:

„Þetta er gleðidagur. Það eru stór pólitísk tíðindi að nú hafi verið lögð fram samgönguáætlun sem er fjármögnuð – ólíkt fyrri samgönguáætlun þar sem forgangslisti jarðganga og annarra stærri framkvæmda var í raun ófjármagnaður óskalisti. Og það er viðeigandi að yfirskriftin á kynningu innviðaráðherra sé „Ræsum vélarnar“.“

Þetta voru orð hæstv. forsætisráðherra í desember um fullfjármagnaða samgönguáætlun. Svo þegar við í stjórnarandstöðunni förum að spyrjast fyrir um hvernig á þessu standi þá kemur fljótlega í ljós að gatið í fjármögnuninni eigi að leysa með þessu svokallaða innviðafélagi sem við erum hér með til umfjöllunar. Upphaflega hugmyndin er augljós af lestri frumvarpsins og liggur kannski að baki þessum orðum hæstv. forsætisráðherra. Hugmyndin var augljóslega sú að stofna nýtt fjármögnunar- og eignarhaldsfélag, færa inn í það þegar byggð mannvirki, búa þannig til eigið fé með gjaldtöku, veggjöldum og öðru slíku þannig að unnt væri að ráðast í nýjar framkvæmdir og taka fyrir þeim lán, eftir atvikum í samstarfi við einkaaðila. Gott og blessað. Þetta var hugmyndin eins og hún var kynnt upphaflega og verður auðvitað að skoða í þessu ljósi sem ég nefndi; að fólkið í landinu er nú þegar að borga meira fyrir sínar samgöngur en íslenska ríkið er að verja í viðhald vega og uppbyggingu nýrra samgöngumannvirkja. En þetta var hugmyndin upphaflega.

Við 1. umræðu þessa máls átti ég í orðaskiptum við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Ég spurði hann út í umfjöllun í frumvarpi málsins sem útlistar nákvæmlega þetta, að félagið taki til framkvæmda Sundabraut, Fljótagöng og Ölfusárbrú og það væri til skoðunar að setja inn þegar byggð mannvirki eins og Hvalfjarðargöng og hefja þar gjaldtöku. Svo var líka rætt þarna að setja inn Reykjanesbraut og Suðurlandsveg og hefja gjaldtöku þar líka og það raunar kynnt eins og það væri nú nokkuð jafnréttismál að gera það. Ég spurði hæstv. ráðherra út í þetta og þá sérstaklega í tilefni af orðum hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á samfélagsmiðli sínum þann 17. mars sl. þar sem ráðherrann segir um þessi hugsanlegu veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsbraut, með leyfi forseta:

„Þetta er auðvitað þvættingur og moldviðri út af engu. Engin áform uppi um neitt í þessa veru og slíkt aldrei verið rætt í ríkisstjórn. Næsta mál.“

Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra út í þetta. Svörin — það er nú óheppilegt að það sé ekki búið að endurrita þessar ræður sem áttu sér stað þarna í mars sl. en ég man þetta nú ágætlega sjálfur og þetta er auðvitað til á upptökum. En svörin voru mjög óljós og hæstv. ráðherra vildi greinilega ekki viðurkenna eða ræða hér í þingsal þessi áform sem er lagt upp með í frumvarpinu hans sjálfs. Þetta er þessi staða og ég vænti þess, ég sit nú ekki í fjárlaganefndinni, að þetta hlyti allt saman að skýrast í meðförum nefndarinnar. En svo skoðar maður umsagnir aðila og þær eru allar á sömu leið og ég skildi frumvarpið og texta þess. Svo kemur sem sagt í ljós að það voru engar umræður í nefndinni. Ég hef þetta bara eftir áliti minni hluta fjárlaganefndar þar sem segir að engin umræða hafi farið fram um frumvarpið eða efni þess fyrr en málið var afgreitt með skyndi til 2. umræðu. Aftur er það þannig að við erum komin hér í þingsal að ræða mál sem er einhvern veginn lítið rætt og illa upplýst. Það gerir okkur þingmönnum erfiðara fyrir um vik að grafast fyrir um hvað mönnum gengur hér til. Þetta eru svona þessir almennu þættir.

Við erum þeirrar skoðunar að það sé svo mörgum spurningum ósvarað um þetta innviðafélag. Það er kynnt með ákveðnum hætti, það er lagt upp með að það eigi að nota þessa leið, að setja þegar byggð mannvirki inn í félagið og hefja þar gjaldtöku. Svo skynjar ríkisstjórnin það einhvern veginn að þetta geti verið pólitískt óvinsælt og þá hættir hún að tala um það. En veruleikinn breytist ekkert við það.

Ég átti í orðaskiptum við annan þingmann meiri hlutans um auðvitað þessi atriði; hugsanleg velgengni þessa nýstofnaða félags mun ekki ráðast af markaðsmálum eða slagorðum ríkisstjórnarinnar, bara engan veginn. Þegar farið er út fyrir þennan sal, þegar farið er út fyrir þennan skrýtna veruleika stjórnmálanna og stjórnmálamannanna, þá vill einkamarkaðurinn bara fá rekstraráætlanir, útreikninga, trúverðuglegar tölur og rekstrarlíkön til þess að meta það hvort hann væri til í að leggja fjármagn til frekari framkvæmda. Ekkert af þessu liggur fyrir hér.

Ég sé að það gengur hratt á tíma minn. Ég tel það líka nauðsynlegt að ræða innviðafélagið sjálft og frumvarpið. Það er augljóst af efni þess að hér er um skel að ræða; almennan ramma í óljósum tilgangi, opinn tékka sem er afgreiddur af Alþingi Íslendinga. Það kunna að vera einhver rök fyrir því að vera ekki að múlbinda alla þætti hins óstofnaða félags en ég er samt þeirrar skoðunar að hér hefði mátt huga betur að ýmsu af ýmsum ástæðum. Það er kannski ekki nema von að ekki hafi betur tekist til þegar meiri hlutinn vill annaðhvort ekki ræða efni málsins, upphaflegar áætlanir og forsendur þess að samgönguáætlunin teljist fullfjármögnuð, eins og forsætisráðherra kallaði hana, vill ekki ræða efni málsins, eða þá hitt, að hann hefur ekki forsendur til að skilja það.

Það eru þarna nokkrir þættir sem mér finnst rétt að líta sérstaklega til. Það er kannski helst þetta samspil félagsins við þingið og ráðherrann. Við þurfum auðvitað alltaf að gæta þess að við séum ekki að búa til ríki í ríkinu. Þarna miðar í raun og veru allt málið að því að hið nýstofnaða innviðafélag verði félag í C-hluta ríkisreiknings en til þess að svo megi verða verður obbinn af vegaframkvæmdunum að standast svokallað markaðspróf, þ.e. að meiri hluti tekna félagsins verður að vera veittur á markaðsforsendum og ekki háður meðgjöf ríkisins. Þá er líka þessi krafa um að hvorki þing né ráðherra megi hafa einhver stórkostleg áhrif eða afskipti af félaginu eða samþykktum þess. Það er auðvitað varnagli þarna, eins og segir í 6. gr. frumvarpsins:

„Félaginu er heimilt að gera samning við ráðherra sem fer með samgöngumál, einn samning eða fleiri eftir þörfum, um uppbyggingu og rekstur samgönguverkefna á grundvelli samgönguáætlunar í samræmi við tilgang og hlutverk félagsins.“

Þar með lýkur liggur við afskiptum ríkisins og eftir atvikum ráðherra af málefnum í það minnsta þessa C-hluta félags. Í þessu felst að samgönguáætlunin verði þá í raun og veru eins og einhvers konar matseðill nýstofnaðs félags. Félagið, eftir atvikum í samstarfi við einkafjárfesta eða -aðila, velur verkefni. Þannig ræðst það í hvaða samgönguumbætur við förum. Þetta er auðvitað atriði vegna þess að sumar vegaframkvæmdir eru arðbærar, aðrar ekki. Hér má lesa það á milli línanna að það kunni að vera að menn sjái hag í því að leggja skuli lengri vegkafla undir, kannski eins og að taka Sundabrautina undir og einhvern vegkafla alveg upp í Borgarnes og segja að þetta sé eitt svæði. Þá erum við komin með blöndu af verkefnum.

Þetta eru svona atriði sem ég staldra aðeins við. Aðkoma ríkisins og Alþingis eftir að félagið er stofnað. Svo eru það þessi atriði varðandi veggjöldin sjálf. Ég hef ekki tíma til að fara yfir það en ætla að ljúka máli mínu á því að þetta hangir allt saman; samgönguáætlun, fjármálaáætlun og þetta innviðafélag. Mér finnst það miður, og þá sérstaklega í samhengi við umræður um samgönguáætlun sem halda áfram síðar í dag eftir atvikum, að það liggi ekki fyrir með samgönguáætlun kostnaðar- og ábatagreining að baki forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Hvernig eigum við þingmenn að geta rætt þessi mál af einhverju viti þegar við fáum ekki slíkar umsagnir?

Forseti. Ég sé að tíma mínum er lokið. Ég hlakka bara til að fylgjast áfram með umræðum hér um þetta mál og vona líka að það skýrist á milli umræðna í nefndinni, eða þá að hæstv. ráðherra útskýri það aðeins betur fyrir þingheimi, hvað í ósköpunum hann ætlar að gera með félaginu.