innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega yfirferð. Mig langar til að byrja með alla vega að fara inn í þá hlið málsins sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir fór í í gær í andsvörum, ef ég man rétt, við hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Ég hef verið að reyna að halda þessu á lofti í umræðunni síðan, bæði í ræðu og í andsvörum fyrr í dag við hv. þm. Dag B. Eggertsson. Það lýtur að 40. gr. stjórnarskrárinnar, þ.e. ef við förum að taka, af því að nú er hv. þingmaður lögmaður, eitthvað sem nú telst inni í efnahagsreikningi ríkisins í almannaeigu, setja það inn í innviðafélagið sem er í C-hlutanum sem einhvers konar stofnfé og í kjölfarið verðum við svo að lesa það í samhengi við það að innviðafélagið hefur svo tvímælalausa heimild til að selja hluta af sjálfu sér. Þá velti ég fyrir mér, hv. þingmaður, hvort við séum ekki komin á eitthvert grátt svæði gagnvart 40. gr. stjórnarskrárinnar, hvort félagið hafi og hvort við höfum heimild til að setja þetta ferli af stað, að þarna fari eigur sem núna eru ríkisins í hendur félags sem í raun og veru hefur söluheimild á þessum sömu eignum. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson vék að því í svari sínu að það bæri að líta til 6. gr. í frumvarpinu og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson kom inn á 6. gr. undir lok ræðu sinnar. Ég fæ ekki séð, herra forseti, að 6. gr. frumvarpsins svari spurningunni um 40. gr. stjórnarskrárinnar.