innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er nefnilega mikilvægt og tengist einmitt þessu sem ég nefndi, að við þurfum að gæta okkur á að vera ekki að búa til svona ríki í ríkinu. Margt af þessu er náttúrlega hefðbundið, er vel þekkt og hefur verið prófað í áratugi þannig að við vitum alveg hvernig þetta virkar í ráðuneytunum, í stofnunum o.s.frv. Hér erum við að tala um opinbert hlutafélag. Við þekkjum söguna um einkahlutafélög eða hlutafélög í eigu ríkisins og þá er það ábyrgðarhluti okkar að fara mjög gætilega vegna þess að annars er hætt við því að við sköpum einhvern bara óskapnað. Varðandi 40. gr. stjórnarskrárinnar þá er það rétt hjá hv. þingmanni að frumvarpið getur til að mynda ekki um hvað verði líka um ný mannvirki, hvort ríkið eignist þessi mannvirki að loknum tilteknum tíma. Það var t.d. gert í Spalarverkefninu, Hvalfjarðargöngum, og er svona almennt í þessum PPP-verkefnum, þannig að það er ekki einu sinni kveðið á um það í frumvarpinu og heldur ekki hvað verður um þær eigur sem ríkið leggur inn í félagið. Þetta mætti skýra. Gjaldtakan er tæknilega flókið mál en mér sýnist að það þurfi að gera einhverjar breytingar á frumvarpinu vegna þess að veggjöldin eiga hvorki að vera skattur né hefðbundið þjónustugjald. Það þarf meira til svo þessi hugmynd geti staðið undir sér þannig að það verður, geri ég ráð fyrir, skoðað betur í fjárlaganefnd.