innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Við geymum kannski frekari bollaleggingar um akkúrat þetta mál en þetta er eitt af þeim málum þó, hv. þingmaður, sem mér finnst að þurfi að vera algjörlega á hreinu áður en Alþingi afgreiðir það því við getum ekki leyft okkur það í þessum sal að leika okkur eitthvað með það sem í dag er almannaeign.
Mig langar hins vegar að spyrja um annað sem hefur borið hér á góma allnokkrum sinnum og varðar Fljótagöngin. Ráðherra er búinn að lofa því að verið sé að fara af stað í Fljótagöngin og það hafa verið tekin dæmi um það að innviðafélagið, þá væntanlega með dótturfélagi, svokölluðu A-3 félagi, öðruvísi sé ég það ekki ganga upp því að þar eru ekki arðsemisvæntingarnar slíkar að það sé hægt að fara með það í C-félag. En það breytir ekki því að jafnvel þó að það verði farið í gegnum innviðafélagið, í gegnum A-3 félag — ég og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson erum ekki alveg sammála um prósentutölurnar þarna; hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talar um að 85% framlag ríkisins þurfi líklega að koma til. Mér sýnist það vera nær 90%. Þá spyr maður, í framkvæmd, sem er 21–22 milljarðar, eitthvað svoleiðis: Hvaðan koma þessir 18–19 milljarðar, því að við finnum þá ekki í fjárlögunum og ekki heldur í fjármálaáætlun? Þetta er kannski ósanngjörn spurning til hv. þingmanns þar sem hann ber auðvitað ekki ábyrgð á loforðum hæstv. ráðherra en við hljótum að þurfa að finna þessa aura einhvers staðar sem verið er að lofa því að þeir koma hvorki fram í fjárlögum né fjármálaáætlun.