innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er einmitt atriði sem ég reyndi að ræða við hæstv. fjármálaráðherra í mars. Svo erum við núna í júní á sama stað sem segir auðvitað allt um vinnu fjárlaganefndar. Það væri auðvitað réttast að ráðherrann væri sjálfur í þingsal til umræðu um þessi mál vegna þess að svörin hans í andsvörum hér við 1. umræðu málsins í mars sl. veittu engar upplýsingar. Þvert á móti voru þau bara til þess fallin að þvæla málið þannig að ég tali bara íslensku hér.
Eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar var lagt upp með ákveðna hugmynd. Hún er útskýrð á bls. 11 í greinargerð með frumvarpinu, þ.e. að félagið taki til framkvæmda Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar og, eins og segir hér, með leyfi forseta, að „til að fjárhagsleg skilyrði haldi þyrfti ríkissjóður að leggja 75 milljarða kr. framlög til félagsins til að verkefnin þrjú uppfylltu skilyrðin.“ Svo kemur til skoðunar að leggja Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót inn í þetta, Hvalfjarðargöng líka en það nægir ekki og þess vegna segja sérfræðingarnir í ráðuneytinu, undirmenn hæstv. ráðherra, að það komi þá til skoðunar að leggja Reykjanesbraut og Suðurlandsveg undir líka og hefja þar gjaldtöku til þess að fara í verkefnin sem eru Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar. Þess vegna er það rangt að forsætisráðherra haldi því fram að þessi samgönguáætlun sé fullfjármögnuð en ekki, eins og hún kallaði það, „ófjármagnaður óskalisti“ og átti þá við síðustu samgönguáætlun.