innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir ræðuna hérna áðan. Eins og hann kom inn á er það frumvarp sem við ræðum hérna í dag, frumvarp til laga um stofnun innviðafélags, náttúrlega nátengt samgönguáætluninni og hefði eðlilega átt að ræða það áður en að samgönguáætlun kom hérna á dagskrá þingsins.
Þingmaðurinn kom inn á fjármögnunina, af því hefur verið statt og stöðugt haldið fram að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Það er augljóst mál að svo er ekki, enda kemur á daginn að það stendur til að að færa alls kyns framkvæmdir undir innviðafélag en svo náttúrlega, eins og einnig hefur komið á daginn, er það ekkert á færi þingsins að færa eitt eða neitt undir innviðafélagið. Það á að vera sjálfstætt og þá má ekki segja því fyrir verkum o.s.frv. Svona hálfgert ríki í ríkinu. Öll verkefni sem það tekst á hendur þurfa að standast markaðspróf og svoleiðis, þ.e. þau verkefni sem falla ekki undir þessi svokölluðu dótturfélög sem eiga þá að fá meðgjöf frá ríkinu, sem mér finnst vera einhvers konar furðuuppsetning.
En mig langar að ræða aðeins við þingmanninn varðandi gjaldtökuna. Svo virðist sem gert sé ráð fyrir því í frumvarpinu að veggjöld núverandi samgöngumannvirkja, svo sem Vaðlaheiðarganga og Hvalfjarðarganga, Hornafjarðarfljóts, verði notuð til að standa straum af kostnaði við Sundabraut, Fljótagöng og Ölfusárbrú, samanber umfjöllun í kafla 6.2 í greinargerð með frumvarpinu. Það er talað um gjaldtöku. Nú ætla ég að ræða sérstaklega um Hvalfjarðargöngin (Forseti hringir.) — ég er alveg að verða búin, forseti — Hvalfjarðargöngin, sem búið er að greiða upp. Ef það á að fara að setja aftur á gjaldtöku fyrir uppgreitt samgöngumannvirki erum við þá ekki að tala um skattlagningu, ekki gjaldtöku? Er þetta ekki skattlagning?