157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[14:51]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er góð spurning. Það er þannig, eins og kom fram í upphafi máls míns, að þegar við erum að hækka álögur á fólk, hvort heldur sem er með veggjöldum, kílómetragjaldi eða vörugjöldum, eða hvað þetta allt saman heitir, en erum samt að verja minna fjármagni í viðhald vega og samgönguúrbætur, þá erum við bara að leggja í almenna sjóði. Það er þannig. Þetta er bara inngjöf í ríkissjóðinn sem ríkið notar þá til annarra verkefna. Það ber þess þá merki að vera tekjuöflunarleið ríkisins. Það sem mér finnst eiginlega verst og svo skrýtið við þennan vinnustað er að það er aldrei hægt að ræða hlutina bara eins og þeir eru. Hér var lagt upp með þessa hugmynd að búa til nýtt félag, hefja innheimtu veggjalda af þegar byggðum mannvirkjum og flýta þannig uppbyggingu annars staðar á landinu. Gott og vel. Af hverju getum við ekki bara rætt þessa hugmynd? En þegar það kemur einhver mótvindur í fangið á þessari ríkisstjórn, sem kallar sig nú oft verkstjórn, þá vill hún ekki kannast við eigin hugmyndir og vill þá nota kannski markaðsskrifstofuna sína í að endurpakka málinu. En eftir er þá bara eitthvert gat í þessu öllu, ófjármagnað gat, sem ég fæ ekki hent reiður á og finnst þess vegna eins og umræðan hér geti eiginlega ekki orðið til neins. Það væri bara heiðarlegt og réttast að hæstv. ráðherra kæmi hér í þingsal og útskýrði fyrir okkur á hverju þessi fullyrðing hans og hæstv. forsætisráðherra byggist um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð en sé ekki bara einhver ófjármagnaður óskalisti, eins og hann kallaði eldri samgönguáætlanir.