innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir svörin. Já, ég held að við séum frekar mikið sammála, ekki síst varðandi þessa fimleika og orðaleiki um að þessir hlutir séu fullfjármagnaðir, sem þeir eru náttúrlega bara alls ekki.
Mig langaði að nýta tímann í seinna andsvari til að ræða við þingmanninn varðandi verkaskiptingu tengt vegamálum. Þegar kemur að samgöngumálum eru fyrir á fleti náttúrlega Vegagerðin og Betri samgöngur og nú er fyrirhugað að innviðafélagið bætist í þann hóp. Þrjú batterí. Vegagerðin er eina félagið sem lýtur boðvaldi Alþingis. Betri samgöngur eru hér aldrei inni á borði. Þó er rekstrarkostnaður þess félags gríðarlega hár. Það kemur aldrei til umræðu hér, alla vega hef ég ekki tekið þátt í þeirri umræðu. Mér finnst þetta, ég veit það ekki — Betri samgöngur, Vegagerðin og innviðafélag, gríðarlegur rekstrarkostnaður hjá öllum þessum batteríum. Mig langar að spyrja þingmanninn: Finnst honum ekki óeðlilegt að þegar er verið að — og nú viljum við öll að vel takist til, ég vil taka það sérstaklega fram, við stofnun þess innviðafélags, en er það ekki svolítið skrýtið að innviðafélagið, (Forseti hringir.) sem er að framkvæma þætti sem eru á samgönguáætlun, lúti ekki boðvaldi Alþingis að einhverju leyti, að það komi aldrei neitt inn á borð Alþingis eins og planið er varðandi uppsetninguna á þessu félagi?