innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er nefnilega bara prýðisandsvar. Eins og segir í áliti minni hluta fjárlaganefndar hafa ekki fengist nein svör við því hvers vegna talið er skynsamlegast að reka þrjár vegagerðir á Íslandi. En eins og kom fram í máli hv. þingmanns þá eru fyrir á fleti Vegagerðin, Betri samgöngur og þá þetta nýstofnaða innviðafélag og ég held að við þurfum að gæta vel að verkaskiptingunni þarna á milli. Vegagerðin mun áfram gegna í rauninni svona veigamesta hlutverkinu, myndi maður ætla, sem er þá að sjá um leiðarval, hönnunarviðmið og samræmingu, en innviðafélagið mun sjá um verklega framkvæmd eftirlitanna. Það verður að vera einhver afhending á verkefnunum þarna á milli á einhverjum tímapunkti og Vegagerðin nefndi það í sinni umsögn til fjárlaganefndar að þetta gæti valdið töfum á verkefnum þegar verið væri að flytja verkefni á milli stofnana. Svo hafa menn jafnvel áhyggjur af samkeppni um starfsfólk og annað slíkt. Við þurfum að gæta að því sérstaklega að við séum ekki að flækja kerfin okkar, þau eru nú nógu flókin fyrir, heldur þá frekar að straumlínulaga þau.
Að því sögðu held ég svona í öllum grundvallaratriðum að einhvers konar innviðafélag geti verið skynsamlegt. En þessi útfærsla er ekki nægilega góð og ekki nægilega skýr. Ég óttast einmitt að þetta geti jafnvel orðið til nokkurs trafala. Verst er þó að áform ríkisstjórnarinnar, áætlanirnar, hafa þegar brugðist (Forseti hringir.) og enginn er til svara til að útskýra hvernig eigi að fjármagna samgönguáætlun.