innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og eins og kom fram hjá honum er markmiðið með félaginu gott. Í upphafi skyldi endinn skoða og við þurfum auðvitað að fara yfir þau mál sem ekki voru rædd í nefndinni og sem ég held að hafi verið mistök en látum það liggja á milli hluta. Við þurfum að taka þessa umræðu hér til að reyna að átta okkur á stöðu mála. Það hefur komið fram hjá mörgum hv. stjórnarliðum að það sé hægt að losa um fjármuni með því að stjörnumerkja ákveðin verkefni og þar af leiðandi geti þeir fjármunir sem eiga að fara í þau verið nýttir í eitthvað annað.
Þegar maður fer að skoða nefndarálit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar eru þeir reyndar búnir að tilgreina nokkur verkefni. Það sem veldur mér áhyggjum þegar ég skoða þetta — ég er ekki búinn að athuga hvort það séu einhverjir fjármunir í þetta fyrir utan Kjalarnesið. Það eru nefnd hérna á bls. 16 í nefndarálitinu suðursvæðið, Markarfljót – Þjórsá, Þjórsá – Selfoss, Varmá – Kambar; höfuðborgarsvæðið, Hólmsá – Bæjarháls, um Kjalarnes; vestursvæðið, Akrafjallsvegur – Borgarnes og um Borgarnes; og norðursvæðið Þelamörk – Akureyri.
Ég get ekki séð annað þegar ég skoða þetta en að í það minnsta Kjalarnesið geti ekki farið í þetta vegna þess að þar er engin hjáleið. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson sagði að það væri hægt að búa til hjáleið. Ég held að það sé nú ekki alveg raunhæft, sömuleiðis með Akrafjallsveginn og Borgarnes og á norðursvæðinu, Þelamörk og Akureyri. Hefur hv. þingmaður einhverjar upplýsingar um þetta því að það er augljóst að í nokkrum af þessum verkefnum er engin hjáleið og þau uppfylla þar af leiðandi ekki skilyrði laganna? (Forseti hringir.) Er meiri hlutinn eitthvað búinn að ræða þetta eða skoða þetta?