innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans andsvar. Ég get alveg tekið undir það. Hér má orða það þannig að það skorti svolítið á umræðu einmitt um hjáleiðirnar. Varðandi það sem stundum hefur verið vísað til sem vafninga, þá er horft til þess að það kunni að vera hægt að setja það að einhverju leyti saman, eins og hv. þingmaður ræddi um, að það séu verkefni sem geta saman í innviðafélaginu staðist þetta markaðspróf sem um ræðir. Ég hef ekki hér við hendina nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar sem er vísað til, væntanlega um samgönguáætlun. En það er auðvitað hér á bls. 11 í frumvarpinu um rekstrarforsendur innviðafélags fjallað um töluvert mörg verkefni. Svo ég sé bara heiðarlegur með það þá hef ég ekki upplýsingar um þessar hjáleiðir þannig að ég þori ekki að reyna að svara neinu með það. Það er hins vegar þannig — af því að það kom fram hér í ræðu áðan varðandi Reykjanesbraut og Suðurlandsveg — að mér finnst eins og kannski hafi verið lagt of mikið upp úr umræðu um það. Það er sagt að mögulegt sé að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi og þá eru nefnd Reykjanesbraut og Suðurlandsvegur. Ég held að þetta hafi ekki verið í neinni umræðu. Hins vegar, af því að þingmaðurinn háttvirti er að hugsa t.d. um Kjalarnesið og eftir atvikum hvort það gæti verið í einhverjum vafningi með Sundabrautinni og eftir atvikum Hvalfjarðargöngum, verður það bara að skoðast. Ég ætla ekki að reyna að koma með einhverja tillögu um það hvernig það geti skoðast en vonandi verður hægt að finna leið til að finna hjáleið, eða hvort hægt er að búa hana til eins og einhver mun hafa sagt.