innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en áhyggjur mínar eru bara þær að ef maður les nefndarálit meiri hlutans þá er það á skjön við í það minnsta þá hugmyndafræði sem maður er búinn að fá kynningu á á milli funda. Ef það verður farið eftir nefndaráliti meiri hlutans — það er túlkun og það er lögskýringargagn — þá er ekki hægt að byggja upp eigið fé í félaginu sem á að búa til snjóboltaáhrif. Sömuleiðis hafa stjórnarliðar mikið talað um það og eru í rauninni bara byrjaðir að lofa því að með því að stjörnumerkja samgönguframkvæmdir þá fari þeir af stað.
Ég met það þannig að þetta hafi ekki verið rætt en þetta frumvarp hangir allt saman á samgönguáætlun sem og á fjármálaáætlun. Ég held að skýrasta dæmið séu auðvitað Fljótagöngin. Þar vantar 18,5 milljarða en menn eru búnir að lofa því verkefni. (Forseti hringir.) Ég ætlast ekki til að hv. þingmaður geti fundið þessa 18,5 milljarða. Aðalatriði málsins er að þetta mál er ekki (Forseti hringir.) nægilega þroskað. Það verður að fá svar við þessum stóru spurningum áður en haldið er lengra.