innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans síðara andsvar. Ég lít þannig á og ég tek undir með hv. þingmanninum um að það er eins og verið er að lýsa innviðafélaginu núna fyrir okkur, þá hafi það verið alla vega hugmyndin að inn í innviðafélagið sé hægt að setja tekjuberandi eignir sem geta hjálpað til með einhverjum vafningum að fjármagna framkvæmdir. Ef það er þannig að orðalag í nefndaráliti meiri hlutans sé þannig að það styðji það ekki þá verð ég að skoða það vel. Ég hefði ekki haldið að það væri þannig. Ég held að það sé raunverulega grunnhugmyndin með innviðafélaginu að það verði til sterkt félag sem geti farið í aðrar framkvæmdir en nákvæmlega bara þær sem eru settar þar inn hverju sinni. (Forseti hringir.) Ég held að við séum raunverulega ekki að ná tilgangi félagsins ef það væri þannig.