innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans yfirferð. Ég hygg nú fyrir fram að spurningarnar sem mig langar að bera undir hv. þingmann muni ekki koma honum neitt á óvart því að hann hefur nú setið hér yfir umræðunni allri, held ég, bæði þessari og líklega mestan part allri umræðunni sem af er samgönguáætlun líka. En ég verð einhvern veginn að halda áfram því að svörin eru ekki að koma og þá verðum við bara, herra forseti, í minni hlutanum að halda áfram að spyrja þangað til við nálgumst einhvers konar svör. Það er t.d. þetta sem ég var búin að spyrja um hér fyrr í dag varðandi 40. gr. stjórnarskrárinnar sem hv. þm. Dagur B. Eggertsson reyndar svaraði mér með því að vísa til 6. gr. í frumvarpinu sem ég tel að nái alls ekki utan um þær spurningar sem vaknað hafa í kringum 40. gr. stjórnarskrárinnar um það hvort okkur er hreinlega heimilt að láta eignir í almannaeigu inn í C-félag sem getur selt úr sjálfu sér. Mér þykir ekki vera búið að svara þessari spurningu enn þá og þetta er lykilspurning, algjör lykilspurning.
Önnur lykilspurning sem ekki hefur verið svarað og hv. þm. Grímur Grímsson gerir kannski atlögu að því að svara. Ég finn ekkert um það, það er hvort íslenska ríkið mun á einhverjum tímapunkti eignast þessar eignir, eftir einhverja áratugi eða eitthvað slíkt. Það er ekkert um það í frumvarpinu sjálfu. Það er líka lykilspurning hvort þessi mannvirki, þessar framkvæmdir, verða til eilífðarnóns eign þeirra fjárfesta, erlendra og innlendra, sem koma að málinu. Þetta er svona kannski fyrsta kastið, herra forseti, sem ég mundi vilja fá … þó að það kunni að vera ósanngjarnt af mér, ég veit það ekki, að ætla hv. þingmanni að reyna við þessar stóru spurningar en einhvers staðar verðum við að finna, herra forseti, svörin við þeim.