157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:19]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans andsvar. Ég geri engar athugasemdir við það að hann reyni að leita svara og jafnvel þótt það sé hjá mér. Ég vona svo sannarlega að það sé ekki algerlega komið í geitarhús að leita ullar. En ég hlustaði á ræðu hv. þm. Dags B. Eggertssonar og ég held að hann hafi ekki vísað til 6. gr. frumvarpsins heldur hafi hann verið að vísa til 6. gr. fjárlaga, þ.e. til svokallaðrar 6. gr. um fjármögnun. Ég hef ekki haft tækifæri til að skoða þetta en ég held að það hafi verið þannig.

Þetta varðandi eignina finnst mér mjög áhugaverð umræða og ég þakka fyrir hana. Ég skil það svo að til þess að innviðafélag geti verið svokallað C-hluta félag að þá megi ekki tilgreina sérstaklega að eignir gangi að ákveðnum tíma liðnum til félagsins heldur sé um það að ræða að það þurfi, ef við erum með einhver tiltekin tímamörk á því hvernig verkefni eru byggð upp, að skoðast að loknu því tímamarki hvað verður um eignina. Ef það væri síðan svo að innviðafélagið yrði bara leyst upp að þá myndi það enda hjá hluthöfunum sem er þá að stærstum hluta ríkið. Svona hef ég skilið þetta. Ég vona að þetta hafi nálgast það að ná einhverju svari.