157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það dregur til tíðinda. Við erum kannski að færast örlítið nær svarinu. Það er þá til einhvers að vera að róa. Ég tek þessa ábendingu hv. þingmanns um tilvísun áðurnefnds hv. þm. Dags B. Eggertssonar til skoðunar, hvort ég finni svörin við þessu í 6. gr. fjárlaganna, hafi ég misskilið tilvísunina hjá hv. þingmanni áðan.

Herra forseti. Aðeins meira varðandi af hverju við erum að vandræðast með þessi svör og af hverju svona margt virðist vera óljóst. Nú fór hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson yfir hvers lags gríðarlegan eignapakka þarf að setja inn í félagið til þess að það hafi þetta eigið fé sem á þarf að halda. Með tilliti til allra þeirra spurninga sem ekki hefur verið svarað enn þá, þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann geti fallist á þá tilfinningu mína að málið hefði þurft að dvelja örlítið lengur inni í hv. fjárlaganefnd (Forseti hringir.) því það virðist, alla vega er það mín tilfinning, hv. þingmaður, ekki vera fullbúið.