innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans síðara andsvar. Það er vissulega svo að í frumvarpinu eru taldar upp ansi margar eignir sem gætu komið til álita inni í innviðafélagi. Þetta er væntanlega tæmandi listi, þannig að hvort allar þessar eignir verði settar inn í innviðafélag finnst mér óraunhæft. Hins vegar er það svo að eftir því sem fleiri tekjuberandi eignir eru settar inn í félagið þá minnkar að einhverju leyti sá kostnaður sem ríkissjóður þarf að leggja inn í félagið.
Meðan ég man varðandi 6. gr. fjárlaganna, þá stendur þetta einhvers staðar í frumvarpinu þó að ég finni það ekki núna í þessum erli.