innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það sem ég hef hins vegar áhyggjur af er, því nú er hann í ríkisstjórn með Samfylkingunni, sem sumir hafa kallað Skattfylkinguna, sem ég hef talið að stæði fyrir mikið af þeim skattahækkunum sem hafa dunið á landsmönnum — mögulega er það ekki bara Samfylkingin, kannski er það bara Viðreisn líka með fjármálaráðuneytinu — en í ljósi þeirra skattahækkana sem hafa verið hef ég áhyggjur af að ríkisstjórnin muni nýta þetta innviðafélag sem algerlega viðbótargjaldheimtu, þ.e. að þeir muni ekki taka tillit til þess að lækka einhverja skatta á bifreiðar á móti. Það mætti til að mynda taka af kílómetragjaldið eða minnka vörugjaldið, nógu margir eru skattarnir á bifreiðaeigendur. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Lítur hann svo á að það sé forsvaranlegt þegar verið er að breyta svona kerfi, að fara yfir í að þeir borgi sem nota, að það sé hrein viðbót? Við þekkjum þetta auðvitað víða erlendis og kosturinn er klárlega sá að ferðamenn munu byrja að borga fyrir notkun veganna en auðvitað gera þeir það svo sem í gegnum bílaleigubifreiðar og aðra skatta, en þessu verður meira beint að þeim sem nota, að þeir borgi. Telur hv. þingmaður ekki að við þurfum að skoða heildarpakkann, hvernig við viljum hátta gjaldtöku til framtíðar í stað þess að allar breytingar séu alltaf til hækkunar?