innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir hennar andsvar því mér finnst þetta vera mál sem við þurfum að skoða vel. Ef stefnt er að því að 1,7% af vergri landsframleiðslu séu innheimt með kílómetragjaldi og öðrum gjöldum, sem er þá skattheimta, og síðan sé það sem hér er fjallað um, 0,33% til viðbótar, þá erum við að tala um 2,03% af vergri landsframleiðslu sem eru tekin af bifreiðum og ökutækjum bæði með þjónustugjöldum og sköttum. Ég ætla ekki að standa hér og nú og segja að það sé útilokað en ég held að það þurfi að skoða þetta mjög vel. Mér finnst það koma til álita, ef farið verður í innheimtu á þjónustugjöldum samkvæmt innviðafélagi, að skattheimtan sem fengin er með kílómetragjaldi og öðrum gjöldum komi til lækkunar á móti. Hvort það verður 1,7% í heildina, 2,03% eða einhvers staðar þar á milli finnst mér bara að þurfi að vera einhvers konar niðurstaða um.