innviðafélag.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Það gleður mig að hann sé tilbúinn að skoða þetta og mér finnst það sýna ábyrgð að við getum farið yfir málið heildstætt. Það sem ég hef hins vegar kannski smá áhyggjur af og tel að við ættum líka að skoða og spyr hv. þingmann hvort hann geti verið sammála því, er að þessi tala, 1,7% af vergri landsframleiðslu, hefur mér þótt svolítið skökk vegna þess að hún var fundin út á þeim tíma, ef mér skjátlast ekki, þegar landsframleiðslan var frekar lág. Það var samt ákveðið að spýta í samgöngur þannig að þær voru mjög hátt hlutfall af vergri landsframleiðslu á þeim tíma þegar þetta fór upp í 1,7%. Ég er því ekkert viss um að það sé endilega réttur mælikvarði til að miða við. En gott og vel, ef við ætlum að miða við hann, veit hv. þingmaður hvort þessi 1,7% séu með virðisaukaskatti eða án.