innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar síðara andsvar. Varðandi seinni spurninguna þá er stutta svarið: Nei, ég veit ekki hvort það er vaskur á þessu. Hins vegar finnst mér áhugaverð umræðan um 1,7% og ég verð bara að viðurkenna að ég veit ekki af hverju við lendum þessu þarna, af hverju við lendum þessu í 1,7%, af hverju ekki í 1,5%, 1,9% eða 1,75%. Ég kann ekki skýringuna á því. Ef ég reyni að ímynda mér skýringuna þá gæti hún að einhverju leyti verið til komin af því að það þurfi að vera eitthvert viðmið og viðmiðið sé, ef við ætlum að ná því að vera með eðlilegar framkvæmdir og endurnýjun á samgöngumannvirkjum, þá þurfum við að vera með það innan þessa ramma. En hvernig þetta er til komið er væntanlega eins og hv. þingmaður lýsti, af því að það var einhvern tímann þetta hlutfall til og við skulum bara halda okkur við það.