157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:31]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni og ég vil benda fólki á að hlusta á ræðu sem hv. þm. Jón Gunnarsson hélt hérna fyrr í dag. Þetta var virkilega ein af betri ræðum sem ég hef heyrt haldnar í þinginu en hún kom ekki til af góðu. Hún kom til af því að við sitjum hér að ræða mál ríkisstjórnarinnar af því að þau koma svo seint inn með mál og nóg er eftir af málum. Við erum hér hvern einasta dag frá hálfellefu á morgnana til tólf á kvöldin. Þurfti virkilega að skemma þessa helgi fyrir í raun og veru ekki bara þingmönnum heldur fjölskyldum þeirra sem vilja virða þessa helgi? Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 1938 og er í dag bæði minningardagur fyrir þá sem hafa farist á sjó, heiðursdagur sjómanna og fjölskylduhátíð við hafnir landsins. Er kannski nokkuð ljóst að við búum við Reykjavíkurríkisstjórn?