157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:33]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er einkenni okkar þjóðar að við lítum til þeirra sem hafa byggt upp þetta þjóðfélag. Við höldum sjómannadaginn hátíðlegan vegna þess að við erum að heiðra sjómenn, bæði þá sem núna stunda sjóinn og skaffa björg í bú en ekki síður þá sem á undan gengu. Hvað segir það, virðulegi forseti, um þingmeirihluta sem er ekki tilbúinn til þess að sýna sjómönnum virðingu? Hvað segir það um þann meiri hluta?

Virðulegur forseti. Ég tek undir allt það sem hér hefur verið sagt af hv. þingmönnum. Ég furða mig á því af hverju stjórnarmeirihlutinn er fullkomlega sinnulaus um það að heiðra íslenska sjómenn.