157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:34]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 6. júní 1938, fyrir 88 árum. Allar götur síðan hefur þingið sýnt þessum degi og þessari helgi sjómanna og fjölskyldna þeirra þá virðingu að taka þátt í þessu sem víðast um land. Margir eru farnir til síns heima hér á þingi til að sinna því. Þetta er í fyrsta skipti, fyrir utan eitt skipti, sem var 2015, að við héldum hér neyðarfund á sunnudagskvöldi sjómannadags til að afnema gjaldeyrishöftin. Það varð að halda hann áður en Seðlabankinn og markaðir opnuðu daginn eftir.

Það hefur margt breyst í áranna rás, virðulegur forseti, en sjómannadagurinn er brú milli fortíðar og framtíðar og við eigum að sýna honum þá virðingu og þeim sem að honum standa sem við höfum gert (Forseti hringir.) á undanförnum árum. Ég ítreka beiðni mína um það að forseti sjái til þess að við ljúkum nú þingfundi, sjáum sóma okkar í því að fara að þeirri hefð sem hér hefur skapast í friði í þinginu á undanförnum áratugum.