157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:36]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég stóð í þeirri meiningu þegar áætlaðri dagskrá þingsins var breytt og umræðu um samgönguáætlun frestað, innviðafélagið sett á dagskrá í dag, laugardaginn fyrir sjómannadag, þá væri það væntanlega vegna þess hve mikið lægi á að ræða þetta mál til að fá sem mestar upplýsingar fram. En það verður að segjast, herra forseti, ef horft er yfir salinn — nú er reyndar hv. þm. Grímur Grímsson farinn en hann er búinn að sitja yfir þessari umræðu í allan dag, og hv. þm. Sigurjón Þórðarson er hér í salnum núna — erum við ekki að fá það sem ég hélt að væri tilgangur þessa laugardagsfundar, herra forseti, sem væri rökræða við meiri hlutann um hvað mætti betur fara í þessu frumvarpi. Þetta virðist ekki hafa neinn annan tilgang en að reyna að þreyta þjóðina til hlýðni. Ég sé engan tilgang, herra forseti, við að halda fundinum áfram ef þetta verður fundarformið. (Forseti hringir.) En ef stjórnarliðar mæta í salinn, ég tala nú ekki um ráðherra, þá skil ég kannski betur hversu mikið liggur á að setja á dagskrá.