157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:37]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Senn fögnum við 1100 ára afmæli Alþingis Íslendinga og fyrir þinginu liggur nú mál sem varðar það hvernig við ætlum að gera það sem best. En á sama tíma sitjum við uppi með ríkisstjórn sem skeytir hvorki um skömm né heiður hvað varðar hefðir, grundvallarreglur þingstarfanna og hvernig þingið kemur fram gagnvart almenningi. Að hér sé ákveðið að funda um óklárað mál, sem hv. þingmenn meiri hlutans sjálfir vita ekki hvernig eigi að vera, bara til að funda, er ekki gott fyrir Alþingi og ásýnd þess. Sjómannadagurinn og sjómannadagshelgin skipa sérstakan sess í hugum Íslendinga. Mér þykir, herra forseti, ótækt að þessum fundi verði haldið áfram mikið lengur.