innviðafélag.
Virðulegur forseti. Það var árið 1987 sem Alþingi lögfesti sjómannadaginn sem frídag. Það er um þessa helgi sem allur flotinn siglir í land. Það er um þessa helgi sem allir sjómenn sameinast um að geta verið með fjölskyldum sínum til að fagna, til að líta yfir farinn veg og horfa til framtíðar. Hér eru haldnar ræður og hátíðir um allt land með þátttöku björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem hafa skipað stóran sess í lífi sjómanna og sjómannafjölskyldna og hafa haldið uppi atriðum sem eru á sjómannadeginum víðast hvar. Þetta er auðvitað ekki boðlegt og þunn viðvera stjórnarþingmanna hér ætti ein og sér að gera það að verkum að forseti myndi fresta þessum fundi. Hér er enginn ráðherra til að taka þátt í þessari umræðu, enginn. Ég leit yfir það og var að reyna að finna út úr því (Forseti hringir.) hvort atvinnuvegaráðherra, sem ætti að vera á ferð og flugi um landið að heimsækja sjómenn og þorp og bæi, væri með einhverja dagskrá sem væri opinber í þeim efnum, en svo er ekki. Hún er kannski bara heima hjá sér (Forseti hringir.) að fylgjast með þessari umræðu. Þetta er ekki boðlegt, virðulegur forseti, að í fyrsta skipti skulum við vera að rjúfa þann frið sem þingið hefur sameinast um á síðustu áratugum (Forseti hringir.) að halda yfir þessari helgi.