innviðafélag.
Forseti. Í dag eru öll ráðuneyti lokuð þannig að það má segja sem svo að ráðherrar séu þingmenn í dag. Þeir vildu hafa þennan fund því að klárlega er forseti Alþingis ekki forseti okkar allra í dag. Enginn ráðherra er í húsinu, þeir eru alla vega ekki sjáanlegir í þingsal. Sjómannadagshelgi. Þetta er sennilega meiri vanvirðing en við höfum upplifað áður og höfum við nú séð margt, enda virðist þessari ríkisstjórn vera verulega í nöp við sjávarútvegsgreinarnar og tekur steininn úr þegar þau virðast raunverulega ætla að halda fund á sjómannadagshelginni. Maður á eiginlega ekki til orð. Maður hefði kannski skilið þetta ef það væri einhver neyð og ráðherrar vildu vera hér til að geta tekið þátt í umræðunni. En þá er ekki að finna hér í húsi.