innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að ræða hvernig þetta mál er statt. Við höfum farið mjög mjúkum höndum um stjórnarliða í þessari umræðu, þá sem hingað hafa mætt og hafa alveg staðið sig ágætlega, það er lítið af þeim núna. En fyrir mér er þetta mjög einfalt: Hvaða skilaboð ætla ríkisstjórnarflokkarnir að senda sjómönnum og fjölskyldum þeirra? Hvaða skilaboð ætla þau að senda? Er það virkilega svo að menn ætli að halda hér áfram? Hv. þingmenn stjórnarliðsins og virðulegi forseti þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur. Við verðum hérna áfram. Þetta snýst um hvaða skilaboð ríkisstjórn Íslands er að senda sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Eru skilaboðin þau að okkur sé alveg slétt sama um sjómannadagshelgina?