157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:43]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég held að það hljóti að vera að hæstv. forseti Alþingis og ríkisstjórnin, stjórnarmeirihlutinn hér sé ekki alveg í tengslum við Ísland og íslensku þjóðina, geri sér ekki grein fyrir mikilvægi sjómannadagshelgarinnar. Þetta er helgin öll og reyndar jafnvel lengri tími, en í dag er nú þegar hafin dagskrá vegna sjómannadagsins. Þetta er séríslenskt fyrirbæri að því leyti að í öðrum löndum er ekki að finna daga sem hafa eins mikla þýðingu fyrir fólk í þeim löndum hvað varðar sérstaka stétt. Það má helst líkja þessu við daga í ríkjum hernaðarlanda þar sem menn minnast þeirra sem fallið hafa í orrustu og bardaga fyrir sitt land. En þessa helgi minnast Íslendingar þeirra (Forseti hringir.) sem hafa fallið, dáið við að bera björg í bú og halda þessu samfélagi uppi og það er vanvirðing af hálfu Alþingis ef það ætlar að líta fram hjá því.