innviðafélag.
Herra forseti. Mér er til efs að nokkrum íslenskum sjómanni þyki það einhver vanvirðing við sig þó að það séu haldnir fundir á Alþingi um þessa helgi. Er það vanvirðing að halda fundi á Alþingi? Mér finnst þetta vera furðuleg umræða, sérstaklega frá þeim sem vilja síður ræða um hagsmuni sjómanna, t.d. um verðlagsmál. (Gripið fram í: Hvað ertu að rugla? )Mönnum finnst þetta rugl en það er auðvitað þannig að það eru hér viðkvæmar umræður, t.d. um skipti sjómanna, verð á (Gripið fram í.) — ég sé að mönnum er eitthvað orðið … (Gripið fram í.) Herra forseti. Getur þú séð til þess að ég fái hljóð hérna? Það er engin vanvirða í því að ræða hér á þingi um þetta mál, innviðafélag.
Mér finnst annað vera sérstakt. Menn koma hér og tala um vanvirðu við sjómenn en gera síðan lítið úr þeirri umræðu sem hér fer fram og gefa þessari umræðu mjög lága einkunn. Mér finnst þetta með ólíkindum og ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn sýni sjómönnum þann sóma að ræða þessi mál, t.d. verðlagsmálin og annað sem skiptir máli þegar (Gripið fram í: Við erum að ræða innviðafélagið.) Við erum að ræða hér fundarstjórn forseta.