innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Þetta er nú endurtekning á þeirri umræðu sem var hér fyrst í morgun. Eðlilega eru menn spældir yfir því að það sé fundað hér á laugardegi en ég tel að við hefðum getað hagað þingstörfum betur í vikunni og með skilvirkari hætti ef við hefðum getað klárað þessi mál sem hér liggja fyrir. En ég vil bara segja að hér hefur átt sér stað mjög góð og málefnaleg umræða um innviðafélagið og ég óska þess að við höldum henni áfram á þeim góðu nótum sem hún hefur verið í allan dag, hún hefur verið mjög málefnaleg og góð.