157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er auðvitað kostulegt að hlusta á fulltrúa stjórnarliða koma hér og ræða mál undir þessari fundarstjórn. Velkist einhver í vafa um það hvers vegna sú hefð hefur verið til staðar að gefa þingmönnum svigrúm til að líta til með hátíðahöldum til heiðurs sjómönnum og fjölskyldum þeirra um áratugaskeið? Velkist einhver í vafa um það? Fulltrúi stjórnarflokkanna, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, hélt hérna enn eina furðuræðuna rétt í þessu. Þetta er algjörlega óskiljanlegt rugl allt saman. Er einhver neyð þannig að ræða þurfi þetta mál sem formaður fjárlaganefndar, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, virðist vera algjörlega ósammála sjálfum sér og eigin nefndaráliti um, á meðan framsögumaður málsins, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, hefur ekki sést hérna síðan það sást undir iljarnar á honum rétt eftir að hann kláraði sína eigin ræðu. Það er enginn hérna sem er hægt að eiga samtal við um þetta mál. (Forseti hringir.) Hvers vegna er haldið áfram, virðulegur forseti, á þessum degi af öllum?