innviðafélag.
Herra forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur að það hafi um margt verið upplýsandi umræður, bæði í samgönguáætlun og nú í innviðafélaginu. En að ýja að því að málið sé hér á dagskrá á laugardegi vegna þess að það þurfi svona mikla umræðu og ýja að því í leiðinni að það sé þá væntanlega stjórnarandstaðan sem þurfi að tjá sig svona mikið, því ekki þvælast stjórnarliðarnir fyrir okkur í umræðunni, að það sé ástæðan fyrir að við séum hér á fundi á laugardegi — herra forseti, ástæðan er hversu seint málin koma fram. Þá verður dagskrárvald meiri hlutans svona flókið og það verður svona erfitt að púsla umræðunni því þegar um risastór mál er að ræða þá hlýtur núverandi ríkisstjórn og meiri hlutinn allur að gera sér grein fyrir því að það verði að halda nokkrar ræður um málið, hvort sem það er samgönguáætlun, innviðafélag eða Evrópusambandsumræðan um daginn. Það er ekki hægt að ætlast til þess að hér sé einhvers konar stimpilpúði sem meiri hlutinn notar til að keyra í gegn mál á einhverjum seinni parti. Ég held að það sé ekkert mál að laga þetta, herra forseti, koma bara fyrr fram með málið.