innviðafélag.
Herra forseti. Ég kem hingað til að taka undir með félögum mínum í stjórnarandstöðunni. Það veldur vonbrigðum og vekur furðu mína í ljósi þess hvar þingstörfin eru stödd, ekki síst að það sé fundað hér á laugardegi um sjómannadagshelgi. Við hver einustu þinglok í þessu húsi hafa menn verið að setjast niður, reyna að ná lendingu. Það þarf að funda svolítið, það þarf að miðla málum o.s.frv. Þannig hefur það verið í áratugi en í jafn marga áratugi hefur engum dottið í hug, þrátt fyrir að sú staða sé uppi, að kalla á fund á laugardegi fyrir sjómannadag, aldrei. Ekki einu sinni í fyrra þegar húsið hérna nötraði af alls konar ástæðum, þá var ekki fundað á laugardegi um sjómannadagshelgi. Það er ekkert hér sem ég get séð sem kallar á þessa ákvörðun og því miður er þetta vanvirðing við sjómenn.