innviðafélag.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn. Þessi dagur er einstakur. Ég tel hann einstakan á heimsvísu, þar sem heil þjóð stendur upp með helsta atvinnuvegi þjóðarinnar og sýnir samstöðu með mönnum hafsins, fólki hafsins sem dregur sannarlega björg í bú okkar Íslendinga þannig að við búum við þá miklu velsæld sem við gerum.
Ég ætla að taka undir með hv. þm. Hildi Sverrisdóttur. Það er með ólíkindum og það er allsérstakt að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur geti ekki náð hér þinglokasamningum eða lokað þingi svo sómi sé að. Það hafa verið margir hér í pontu sem hafa nefnt að þetta sé algerlega fáheyrður viðburður, (Forseti hringir.) að hér sé þingfundur um sjómannadagshelgi. Mér finnst það þessari ríkisstjórn til minnkunar. Ég gagnrýni það mjög að stjórnarliðar séu algjörlega vanhæfir til að ná hér þinglokasamningum.