157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:53]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en komið hingað upp og tekið undir með þeim hv. þingmönnum sem hingað hafa komið og lýst vonbrigðum sínum yfir því að við séum að funda á Alþingi í dag, sjómannadagshelgina, á laugardegi. Eins og fram hefur komið eru ekki fordæmi fyrir slíku en því miður hefur það nú verið þannig að við höfum séð ýmsar hefðir og venjur brotnar hér á síðustu mánuðum þessarar ríkisstjórnar. Þannig að kannski ætti það ekki að koma neitt á óvart að menn séu tilbúnir að funda á laugardegi um sjómannadagshelgi. En það er nú þannig, virðulegur forseti, að dagskrárvald þingsins er í höndum forseta. Það er hann sem ákveður hvenær málin koma fram. Það er meiri hluti hér á þinginu sem stýrir vinnu í nefndum og það er bara ágætt að benda á að það er ekkert óeðlilegt við að þingmenn tali hér í málum eins og samgönguáætlun, innviðafélagi og fjármálaáætlun sem var tekin út úr nefnd í morgun. Það eru tugir mála sem við eigum eftir að ræða sem hafa ekki einu sinni komið nefndarálit út úr. Það er því einfaldlega rangt að varpa þeirri ábyrgð á stjórnarandstöðuna að það sé okkur að kenna hvernig fyrir þessu er komið. Dagskrárvaldið er í höndum forseta og ég held að við ættum að segja þetta gott í dag.