innviðafélag.
Herra forseti. Ég endurtek að mér er til efs að nokkrum sjómanni sé misboðið þó svo að við höldum fundi á Alþingi. Þetta er bara fráleit umræða. Auðvitað hef ég skilning á því að hv. stjórnarandstaða nenni vart að ræða innviðafélagið því það er kannski lítið í því annað en tækifæri fyrir þjóðina til að byggja upp innviði. Hvað sem því líður þá held ég að það væri vel við hæfi að stjórnarandstaðan ræddi t.d. um verðlagsmál og ég held að það væri vel þegið af íslenskum sjómönnum að ræða einmitt þau, koma á meira gagnsæi hvað varðar verð. Það er auðvitað ólíðandi að verð sem er greitt til íslenskra sjómanna sé aðeins einn þriðji af því verði sem er gefið upp hjá nágrönnum okkar í Færeyjum. Sama má segja um allan annan fisk, að við séum hér með tvöfalda verðlagningu. Það færi betur á því, herra forseti, að stjórnarandstaðan ræddi þessi mál í stað þess að fara hér yfir hátíðahöld, að við séum að missa af þeim og vera sár yfir því. (Forseti hringir.) Ég held, þegar upp er staðið, að sjómenn muni sjá um sín hátíðahöld, hvort sem við hér inni náum að mæta og taka þátt í þeim.