157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:56]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég get ekki látið hjá líða að bregðast aðeins við ummælum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Við sem hér erum í stjórnarandstöðunni teljum það ekki eftir okkur að mæta til vinnu í þetta hús. Mér þykir miður hvernig þessi ríkisstjórn heggur í allar hefðir sem hafa verið í áratugi í þessu húsi, heggur líka í þær hefðir að koma með mál í tíma til þingsins og sýna Alþingi Íslendinga þá virðingu að þingið fái tíma til að vinna mál hér vel.

Hér vill hv. þingmaður ræða skiptaverð sjómanna. Það er bara ekki á dagskrá. Við erum að ræða hér innviðafélag sem við í stjórnarandstöðunni höfum gert athugasemdir við og munum ræða, (Forseti hringir.) enda teljum við þörf á, enda hefur það mál komið allt of seint til þingsins. Verkstjórn þessarar ríkisstjórnar er með ólíkindum. Það er með ólíkindum að nú annað árið í röð ætli ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ekki að takast að ljúka hér þinginu svo sómi sé að.