157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[15:58]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Saga sjómannadagsins er samofin sögu íslenskrar þjóðar, sjómannastéttar og mikilvægi sjávarútvegs fyrir þjóðina. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn 6. júní 1938 í Reykjavík og á Ísafirði. Frumkvæðið kom frá sjómannasamtökum og var einn helsti frumkvöðullinn Henry Hálfdansson, formaður Félags íslenskra loftskeytamanna, og ötull baráttumaður í slysavörnum. Til að undirbúa daginn var sjómannadagsráð stofnað árið 1937 af 11 sjómannafélögum í Reykjavík og Hafnarfirði. Tilgangurinn var að heiðra íslenska sjómenn og auðvitað að minnast þeirra sem farist höfðu á sjó, að efla samstöðu sjómannastéttarinnar og kynna mikilvægi starfa hennar fyrir þjóðina. Þetta var tilgangurinn með sjómannadeginum og þetta er enn þá tilgangurinn. Fyrstu hátíðahöldin vöktu gríðarlega athygli. Þúsundir manna tóku þátt í skrúðgöngum og hátíðahöldum í Reykjavík. Þar voru ræðuhöld, íþróttakeppni, sjómannakappróður, sjósund og ýmsar aðrar skemmtanir. Talið er að um þriðjungur Reykvíkinga hafi safnast saman við hátíðahöldin. Á örfáum árum breiddist siðurinn út til allra sjávarbyggða landsins og varð einn stærsti hátíðisdagur ársins víða um land.

Árið 1987 samþykkti Alþingi Íslendinga lög um sjómannadag. Hann var lögskipaður frídagur sjómanna. Jafnframt var ákveðið að hann skyldi haldinn fyrsta sunnudag í júní nema ef hvítasunnu bar upp þann dag, þá frestaðist hann um viku. Í dag er því sjómannadagurinn bæði minningardagur um þá sem farist hafa á sjó og heiðursdagur sjómanna en jafnframt er hann fjölskylduhátíð við hafnir landsins með siglingum, björgunarsýningum, tónleikum, kappróðri og öðrum viðburðum. Fyrir Íslendinga hefur dagurinn alltaf haft sérstaka merkingu enda byggðist efnahagur þjóðarinnar um aldir að miklu leyti á sjósókn. Sjómannadagurinn var því ekki aðeins hátíð sjómanna heldur einnig þakkardagur þjóðarinnar til þeirra sem sóttu björg í bú úr hafinu.

Frú forseti. Í ljósi alls þess sem hefur komið fram hér er með stökustu ólíkindum að í fyrsta skipti síðan árið 2015, þegar Alþingi kom saman á laugardegi um sjómannadagshelgina til að samþykkja neyðarlög, ákveði þessi ríkisstjórn að þingfundur skuli haldinn á sjómannadagshelginni. Mér þykir þetta vanvirðing og auðvitað var það þessi ríkisstjórn, sem virðist ekkert heilagt, sem ákvað að vera fyrst ríkisstjórna til að hafa þingfund á laugardegi á sjómannadagshelginni. Nú er það ekki svo að það sé erfitt fyrir okkur þingmenn að koma til vinnu á laugardegi enda erum við búin að vera frá níu á morgnana til miðnættis alla daga vikunnar, það fylgir starfinu, en þetta snýst um virðingu fyrir þeim sem hafa látið lífið við það að sækja björg í bú.

Frú forseti. Hér er enginn ráðherra í salnum, ráðherrarnir taka ekki þátt. Ef það væri svo að það lægi á myndi maður kannski reyna að sýna þessu skilning en staðreyndin er sú að ekki einu sinni fjármálaáætlun er komin út úr nefnd. Ríkisstjórnin er búin að missa tökin á þingstörfunum. Hér er allt í óstjórn. Það er fullkomlega tilgangslaust að hafa aukaþingfund á þessum degi en við erum hér vegna þess að við erum sett í þá stöðu að velja á milli þess að taka þátt í sjómannadeginum ella geta ekki rætt þau mál sem eru hér til umræðu. Innviðafélagið er mikilvægt mál og krefst umræðu. Ég hugsa að ríkisstjórnin hafi kannski haldið að hún gæti bara laumað þessu í gegn án umræðu með því að setja fund á laugardegi.

Ég vil byrja á að segja að mér þykir hugmyndin um innviðafélag mjög góð. En það skiptir miklu máli hvernig útfærslan er ef vel á að takast því eitt af aðalatriðunum er að þetta verði ekki bara viðbótarskattlagning. Þó að við séum að flýta framkvæmdum með innviðafélagi er kannski það besta við félagið að við fáum inn þekkingu til að fara í framkvæmdirnar og þannig getum við flýtt þeim. Við fáum mögulega inn erlent fjármagn sem hjálpar þjóðarbúinu og þekkingin sem myndast verður auðvitað að einhverju leyti eftir hér á Íslandi. Þegar við erum að fara í svona stóra kerfisbreytingu, að þeir borgi sem nýta vegina versus það sem við höfum verið í, sem er að allir borgi í ríkissjóð og Vegagerðin fari svo bara í framkvæmdir eftir samgönguáætlun, þá verðum við að skoða heildarmyndina og heildarmyndin er sú að við getum ekki bætt þessum sköttum við. Mér hefur þótt eins og hv. þingmenn meiri hlutans — ég tala um hv. þingmenn, ekki hæstv. ráðherra vegna þess að þeir hafa ekki tekið þátt í umræðunni — haldi að ef það verði til innviðafélag verði til í einhvers konar tómarúmi peningar til að fara í framkvæmdir, að allt sem er í innviðafélagi sé þess eðlis að við þurfum ekki að borga fyrir það. Það er auðvitað ekki þannig, frú forseti, vegna þess að á endanum lendir þetta allt á þeim sem nýta vegina, sem eru fyrst og fremst heimili landsins, og við höfum ekki fengið að taka þá umræðu um hvernig hæstv. ríkisstjórn lítur á það að afnema einhverja aðra skatta ef þau ætla að bæta þessu við.

Ég vil reyndar segja varðandi þetta frumvarp að það hefur verið unnið gott starf og margt jákvætt er að finna í þessu frumvarpi en það virðist líka mikill áhugi á að færa forgangsröðun verkefna frá kjörnum fulltrúum til embættismannakerfisins þannig að valdið og lýðræðislegt vald minnki. Atkvæði okkar í lýðræðislegum kosningum verður minna og minna ef kjörnum fulltrúum er stöðugt ýtt til hliðar. Þeir gefa jafnvel stöðugt frá sér vald og þá á endanum er það embættismannakerfið sem tekur við. Forgangsröðun framkvæmda verður að koma frá Alþingi.

Samgönguáætlun í dag á að vera til hliðsjónar fyrir nýtt innviðafélag þannig að það á að geta valið úr þeim framkvæmdum sem henta best. Við vitum að innviðafélagið fer bara í framkvæmdir sem eru arðbærar, annaðhvort bara í arðbær verkefni eða með meðgjöf frá ríkinu í óarðbærum verkefnum. Gefum okkur að það séu tvö arðbær verkefni, Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganganna, og það er hér ríkisstjórn sem hefur lofað kjósendum því að Sundabraut verði fyrsta mál á dagskrá. Þessi ríkisstjórn fékk mögulega atkvæði og kjör út á loforð sín og eitt af þeim var að Sundabraut yrði fyrst á dagskrá. En ef þetta innviðafélag færi óbreytt í gegn þá yrði það innviðafélagið, ekki kjörnir fulltrúar, sem réði hvað væri fyrst á dagskrá. Þá myndi að öllum líkindum tvöföldun Hvalfjarðarganga vera fyrsta mál á dagskrá ef hún væri arðbærari en Sundabraut, bæði arðbær verkefni.

Aftur á móti er Sundabraut mögulega líka þjóðhagslega miklu arðbærari en innviðafélagið tekur ekki tillit til þess, það tekur bara til beins fjárhagslegs hluta. Þetta tel ég ótækt vegna þess að okkur er sagt að innviðafélagið verði að starfa svo sjálfstætt að kjörnir fulltrúar megi ekki hafa skoðun á þessu. Ég tel það ekki rétt vegna þess að félagið þarf að vera sjálfstætt þegar það byrjar með verkefnin. Þetta frumvarp getur alveg falið það í sér að innviðafélagið geti eingöngu farið eftir forgangsröðun í samgönguáætlun. Þannig að ef meiri hluti Alþingis segir: Við viljum fara númer eitt í Sundabraut, númer tvö í þetta, þrjú í þetta o.s.frv. þá þarf innviðafélagið að útskýra af hverju það getur ekki farið eftir forgangsröðuninni og það kunna að vera skýringar á því, til að mynda að eitthvert verkefni sé ekki arðbært. Þá þarf ríkið að ákveða hvort það hafi verið búið að setja fjármuni í það verkefni eða hvernig það ætli að sinna því.

Það á líka alveg eftir að fara fram umræða um af hverju eigi að stofna innviðafélag, þó að ég sé mjög hlynnt því ef vel tekst til, en ef það er þannig að fjarlægja á allt vald frá kjörnum fulltrúum þá tel ég þetta ekki nógu gott. Þá er mikið betra að fara svokallaða BOT-leið, að byggja, að fá einkaframtakið að framkvæmd. Hvalfjarðargöngin eru dæmi um BOT-framkvæmd. Þar voru fengnir aðilar sem sáu um fjármögnunina, komu með þekkinguna, byggðu göngin, sáu um að reka göngin og skiluðu þessu aftur til ríkisins samkvæmt samningi. Það var í höndum stjórnvalda að velja hvaða framkvæmd var farið í. Með slíkri framkvæmd er öll áhættan hjá einkaframtakinu en með innviðafélaginu erum við auðvitað að setja áhættu á skattgreiðendur þessa lands, þannig að þetta þarf allt að meta.

Svo hefur því verið haldið fram hérna að við fáum mikið betri kjör fyrir innviðafélag ef það er í ríkiseigu en þá er ekki minnst á að það sé í C-hluta. Þá þarf félagið auðvitað að vera fyrir utan ríkisreikninginn. Það er viljandi gert til þess að skuldir þessa félags verði ekki hluti af skuldum ríkissjóðs, þ.e. fyrir utan ríkisreikninginn, og það er ekki með ábyrgð frá ríkinu. Það er því ekki ríkisábyrgð þannig að lánskjör verða ekkert betri. Þá munu lánskjör snúa að því hver verkefnin eru. Hver er arðsemin? Hvað verður mikið eigið fé? Þetta er allt skoðað og þá skiptir engu máli hvort þetta er algerlega einkaframtak eða C-hluta félag í meirihlutaeigu ríkisins.

Hins vegar virðist ástæðan líka vera sú að það eigi að búa til einhvers konar vafning af félögum og það er alveg hægt að gera það líka án þess að hafa þau í innviðafélagi. Ég er bara að benda á að það eru möguleikar sem ekki er búið að ræða hérna, þar sem hugmyndin með þessu innviðafélagi virðist vera að félagið stofni dótturfyrirtæki. Gefum okkur að það séu þrjú dótturfélög, tvö með verkefni sem eru arðbær og eitt sem er með meðgjöf frá ríkinu, sem sagt óarðbært. Og hvað gerist þarna? Þarna ertu kominn með stóran pakka. Þá vissulega, það er hugsunin, ertu kominn með möguleika á betri lánskjörum en þú getur alveg búið til þannig pakka án þess að það sé C-hluta félag. Lánskjörin snúa því bara að þessum þáttum, eins og ég sagði áðan, um arðsemina, um framkvæmdina og þá þætti sem fjármögnunaraðilar skoða. Þannig að þetta félag sem er með tvö arðbær dótturfélög og eitt óarðbært, sett í einn pakka, er þá komið með hlutafé frá ríkinu. Þá er kannski hægt að fá betri lánskjör enda liggur þá ríkissjóður með peninga þar inni, eignir. Það er eðlilegt að það kosti að liggja með eignir þar.

Það sem gerist líka er að svona innviðafélag, sem á algerlega að starfa á markaðsforsendum, getur upp að ákveðinni prósentu verið með óarðbær verkefni með svona meðgjöf. Þannig nær þessi ríkisstjórn að taka út úr ríkisreikningnum hluta af sínum vandamálum. Ríkisstjórnin virðist því ætla að taka þessar framkvæmdir út úr ríkisreikningnum, skuldirnar, fá hrósið fyrir alla framkvæmdagleðina en engu að síður fela framkvæmd sem venjulega myndi falla undir svokallaðan A-hluta ríkissjóðs, þannig að þau eru að ná að fela hluta af framkvæmdunum þar inni undir C-hluta ríkissjóðs, þannig að þetta er eins og önnur ohf. sem eru rekin á markaðsforsendum. Eins og ég sagði áðan er ég ekki að tala gegn þessu félagi en ég hef talað fyrir því að það eigi ekki að búa til enn eitt félagið, enn eitt ohf.-félagið sem verður á einhvers konar sjálfstýringu. Það er alveg gegnumgangandi, í þessu frumvarpi, verið að ýta undir að félagið eigi að vera svo sjálfstætt að lýðræðislega kjörnir fulltrúar megi hvergi koma nálægt því. Svo skoðum við þetta aðeins betur, þá má embættismannakerfið mjög mikið koma að málum. Þetta er vandamál sem við höfum séð í öðrum ohf.-félögum og núna þegar við erum að stofna nýtt félag þurfum við að vanda til verka og gera trúverðugleikann sem mestan. Þó að forgangsröðun verkefna verði hjá Alþingi eru auðvitað allir sammála um að fá reynslumesta og hæfasta fólkið í innviðafélagið, enda viljum við byggja upp góða þekkingu og fólk sem getur ýtt þessum verkefnum vel af stað. En það gengur ekki að kjörnir fulltrúar geti ekki haft eitthvað um það að segja í hvaða röð farið verið í framkvæmdir.

Ég hefði viljað fara í andsvör við einhvern hv. þingmann eða hæstv. ráðherra sem myndi vita hvort félaginu sé stætt á að fara í verkefni fyrir utan samgönguáætlun, það á alveg eftir að svara því. Gefum okkur að í þessu félagi myndist mikil þekking. Það verður til dótturfélag sem gæti þá mögulega farið í verkefni erlendis. Má félagið gera það? Ég veit það ekki. En þá erum við líka komin með sama vandamál og í öðrum ohf.-félögum, að dótturfélögin sem eru komin lengra frá landsmönnum eru komin í samkeppnisrekstur. Þurfum við þá ekki að gera grein fyrir því að mögulega, ef slíkt félag verður til, verður ríkið í einhverjum takmörkuðum eignarhlut í því félagi að standa í samkeppnisrekstri? Þetta höfum við séð í öðrum ohf.-félögum og við þekkjum alveg söguna. Það er ekki langt síðan ríkið var að reka bókabúð og veitingastaði á Keflavíkurflugvelli og það var talið að ríkið þyrfti að gera þetta allt. Ég held því fram að enginn myndi vilja fara til baka. Ég er á því að við eigum að lágmarka samkeppnisrekstur ríkisins.

Svo langar mig að minnast á það, frú forseti, að í tilviki þessa innviðafélags liggur fyrir að í þeim framkvæmdum sem farið verður í þurfi alltaf að vera val um aðra leið. Þetta er skilyrði sem þarf að uppfylla. Svo segir hér í frumvarpinu, með leyfi forseta, að „mannvirkið sem um ræðir ætti að vera hægt að selja ef innviðafélagið lendir í vanda“. Hvað þýðir þetta? Ég veit að það er enginn hér til að svara. Það er bara settur á fundur, ég hreinlega veit ekki hvers vegna, alla vega ekki til að meiri hlutinn sinni sinni vinnu. Hvað þýðir þetta? Þýðir þetta, frú forseti, að kannski væri hægt að selja Sundabrautina hverjum sem er? Liggur ekki fyrir að ríkið muni eignast allar framkvæmdir að einhverjum tíma liðnum? Var það ekki hugsunin með innviðafélaginu eða verður þetta um ókomin ár að hluta til í eigu ríkisins? Svo kemur í ljós, ef illa fer, að hægt sé að selja þessa innviði, og hverjir mega þá kaupa? Má hver sem er eiga Sundabraut? Ég veit það ekki. Ég hefði viljað spyrja einhvern hv. þingmann en þetta er eitt af því sem við þurfum að fá svar við. Ég hélt að það væri samstaða um að við ættum lykilinnviði þó að við þyrftum ekki að reka þá alla. — En, frú forseti, nú er ég eiginlega bara rétt að byrja þannig að ég óska eftir að vera sett aftur á mælendaskrá.