157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:19]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Enn og aftur sé ég mig knúinn til að koma hér upp og óska eftir því að forseti sýni þá virðingu hér gagnvart þingmönnum og gagnvart sjómönnum og þeim tímamótum sem eru alltaf á þessum tíma árs, sjómannadagshelginni, að slíta þessum fundi í dag. Við erum búin að fara yfir það mjög vandlega hvernig er verið að brjóta blað í störfum þingsins með því að boða til þingfundar, sátt sem hefur verið órofin í áratugi. Á þessari helgi leggjum við deilumálin til hliðar og fögnum með sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Það er ekki eins og það hafi verið einhverjar tafir á þingstörfum. Hér hefur það verið frekar regla en undantekning eftir áramót að hér eru fundir fram eftir öllum kvöldum (Forseti hringir.) sem á samkvæmt þingskapalögum að vera undantekning. Hér höfum við verið að funda á föstudögum. Það hefur ekki verið neitt kvartað yfir því af hálfu stjórnarandstöðunnar. (Forseti hringir.) Mál eru komin seint fram. Það er ekki hægt að bjóða upp á þetta, virðulegur forseti, það er ómaklegt, ódrengilegt (Forseti hringir.) og virðingarleysi við þá sem hér eiga undir.