innviðafélag.
Frú forseti. Þann 15. júní í fyrra á sunnudegi fór fram ömurlegasti þingfundur sem ég hef tekið þátt í. Það var alveg átakanlegt að vera hér í þinginu þann dag og var þinginu öllu til skammar. Þessi ríkisstjórn sem við sitjum uppi með nú um stundir virðist hafa það að sérstöku markmiði að ýta til hliðar hefðum og venjum og þá helst ef þær hafa skapast í einhverju svona fallegu virðingarverðu samhengi. Það er það sem er að gerast í dag, nefnilega. Fundurinn sem var haldinn á laugardegi, um sjómannadagshelgi árið 2012 eða 2015 (JGunn: Sunnudagskvöld.) að kvöldi til. Það var í sátt út á atriði sem varð að klára. Hér er engin sátt og það verður engin sátt í þessum sal ef fram heldur sem horfir og það er ábyrgðarhluti að virðulegur forseti (Forseti hringir.) skuli haga skipulagi þingstarfa með þeim hætti sem hér birtist.