innviðafélag.
Frú forseti. Ég kom inn á það í ræðu minni áðan að ég hefði ekki haft tök á því að fara í andsvör við hæstv. ráðherra og hv. þingmenn til að fá svör við nokkrum spurningum um þetta innviðafélag. Ég freistaði þess að setja spurningarnar fram í ræðu hér áðan í þeirri von um að einhver úr meiri hlutanum eða minni hlutanum gæti komið hér og svarað fyrir þetta innviðafélag.
Frú forseti. Þessi þingfundur er að verða eitthvert grín. Hér er haldinn þingfundur á sjómannadagshelgi, ekki til að málstofa Alþingis virki heldur sem einhvers konar — ég veit ekki hvað er að gerast, frú forseti, en ég tek undir með öðrum hv. þingmönnum að það væri gott að fá svar við því hvort forseti hyggist halda þessum fundi áfram. Ef svo er þá óska ég eftir því að hæstv. ráðherrar komi og taki þátt í störfum Alþingis vegna þess að nú eru öll ráðuneyti lokuð.