157. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2026.

innviðafélag.

535. mál
[16:23]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það hefur komið fram í máli hv. þingmanna í minni hluta fjárlaganefndar að málið, þ.e. málið sem við ræðum hér, um innviðafélagið, hafi nánast verið rifið út úr nefndinni án nokkurrar umræðu eftir að gestakomum lauk. Það hlýtur að gefa augaleið að ef nefndin fær ekki tækifæri til að klára umræður í nefndinni og klára að móta málið þá færist sú umræða inn í þingsal. Það held ég að öllum sé ljóst, bæði þeim sem hafa verið hér um lengri og skemmri tíma. Allar bollaleggingar eða tilraunir til að ýja að því að örfáar ræður, og ég tek fram örfáar ræður sem hafa verið fluttar um málið, séu einhverjir tafaleikir eða slíkt tekur auðvitað engu tali. Ástæðan fyrir því að þetta mál er hér á dagskrá á laugardegi fyrir sjómannadag er vegna þess að verkstjórnin klikkaði. Það er ástæðan, frú forseti.